top of page
8e58dcbc5047afa76b2884bc05745876309421fd1f72d6d648593b70e63ac0e9.png

MINTOS RÁÐGJÖF

Upplýstar ákvarðanir og breytingar sem skila árangri

Ráðgjöfin sem við veitum sameinar djúpa tæknilega þekkingu, viðskiptaskilning og reynslu af stjórnun, stýringu breytinga og mannlegu hliðina.

Við skiljum bæði tungumál tækninnar og stjórnenda sem stuðlar að upplýstari ákvarðanatöku.

 

Við komum inn þegar þörf er á skýrleika, samhæfingu og leiðsögn við flóknar ákvarðanir, breytingar eða innleiðingar.

 

Ef markmiðum hefur ekki verið náð komum við inn og greinum núverandi stöðu og samræmum við stefnu og ferli til að ná fram meiri skilvirkni og árangri.

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónustan hentar fyrirtækjum og stofnunum sem vilja:

  • velja ný kerfi eða endurmeta núverandi lausnir

  • undirbúa stafrænar breytingar eða tæknilega innleiðingu

  • kortleggja ferla, þarfir og kröfur áður en ákvörðun er tekin

  • bæta samskipti milli stjórnenda, notenda, tækniteyma og birgja

  • hámarka árangur og skilvirkni núverandi ferla

  • breytingar á skipuriti eða skipulagi

  • ná betri yfirsýn yfir kostnað, áhættu og ávinning verkefna

764b8fe309b2a5b14d0196512906ac1150b825e75f5eb87c85e1bf5afb0fa171.png

Af hverju Mintos?

 

Við höfum einstaka reynslu bæði úr heimi tækni og viðskipta sem stjórnendur, verkefnastjórar, ráðgjafar og vörustjórar og skiljum því bæði tungumál tækninnar og stjórnenda.

 

Við höfum stýrt breytingum, leitt teymi og unnið með stjórnendum að stefnumótun, umbreytingum og innleiðingum, bæði tæknilegum og þeim sem hafa áhrif á skipulag og stefnur.

Við skiljum að árangur næst þegar stefna, fólk, menning, ferlar og tækni, vinna saman að sameiginlegum markmiðum.

Við höfum lært að ekki allar breytingar skila þeim árangri sem ætlast er til. Sérþekking okkar liggur því líka í að koma inn og greina, stilla af og bæta núverandi umhverfi.

a3cf3b36d834a0b935d71b77863ef181b05a6548e3f074c3dec8fab58387d678.png

Hvernig hjálpum við þér?

Við getum komið inn á lykilstundu og hjálpað til við að skapa skýrleika áður en stórar ákvarðanir eru teknar eða þegar eitthvað er ekki að virka eins og lagt var upp með.

 

Við aðstoðum meðal annars við:

  • stefnumótun og forgangsröðun

  • umbreytingar og breytingastjórnun

  • skipulags- og menningarmál

  • þarfagreiningu og kortlagningu ferla

  • að þýða þarfir notenda yfir í tæknilegar og viðskiptalegar kröfur

  • val á kerfum og lausnum og tæknilegar ákvarðanir

  • undirbúning útboða eða samskipti við birgja

  • undirbúning innleiðinga og umbreytingarverkefna

  • stjórnun og samhæfingu hagsmunaaðila

  • stuðning við ákvarðanatöku stjórnenda og leiðtogateyma

  • mat á áhættu, ávinningi og mismunandi sviðsmyndum

  • að tengja saman viðskiptaþarfir, fólk og tækni

  • að ná yfirsýn yfir þjónustuferla eða virðiskeðjur heildarinnar og tengja við raunveruleg störf til á ná fram meiri skilvirkni

4eb9fb17b1dede9199772c8f8849e90aab6ead6f

Markmið okkar er að hjálpa með því að forðast óskýrar þarfir, rangar ákvarðanir, dýr mistök og innleiðingar á breytingum sem daga uppi eða skila ekki því markmiði sem ætlast er til.

 

Við komum inn með hlutlausa sýn, spyrjum réttu spurninganna og hjálpum til við að greina og móta raunhæfa leið áfram, áður en of miklum tíma, peningum og orku hefur verið varið í ranga átt.

Viltu taka spjallið um áskoranir
sem þú stendur frammi fyrir?

​​Hafðu samband og við tökum samtal um hvar þið eruð stödd, hvaða áskoranir þið eruð að glíma við og hvort við getum hjálpað til við að skapa meiri skýrleika eða veitt ykkur faglegan stuðning.

bottom of page