
VERKEFNASTÝRING
sem kemur verkefnum áfram
Stór verkefni ganga sjaldan upp af sjálfu sér. Þau þurfa skýra stefnu, raunhæfa áætlun, virka eftirfylgni og fólk sem getur tengt saman stjórnendur, teymi, birgja og hagaðila.

Þegar verkefni sitja föst
Mikilvæg verkefni eru oft sett ofan á dagleg störf fólks. Þá vantar tíma, fókus og skýrt eignarhald.
Ákvarðanir tefjast
Samskipti milli aðila verða flókin
Ábyrgð verður óskýr
Verkefnið missir kraft
Fundum fjölgar án þess að verkefnið hreyfist áfram
Ávinningur verður óljós

Við hjálpum til við að koma verkefninu í skýran farveg.
Við hjálpum fyritækjum og stofnunum að ná betri stjórnun á mikilvægum verkefnum með skýrleika, festu og raunverulegri eftirfylgni.
Hvernig við vinnum
Við komum og setjum okkur fljótt og vel inn í verkefnið, greinum og hjálpum til við að setja fram skipulag og stýringu sem virkar í raun.
Setjum upp skýra verkefnaáætlun
Fygljum eftir ákvörðunum
Skilgeinum hlutverk, ábyrgð og ákvarðanaleiðir
Greinum og stýrum áhættu
Höldum utanum framvindu og næstu skref
Bætum samskipti milli stjórnenda, teyma, birgja og hagaðila
Leiðum stöðufundi og vinnustofur
Styðjum stjórnendur í gegnum krefjandi breytingar

Einstök reynsla úr tækni- og innleiðingarverkefnum
Við höfum mikla reynslu af verkefnum þar sem tækni, rekstur, fólk og breytingar mætast.
Við skiljum bæði viðskiptalega og tæknilega hlið verkefna og getum brúað bilið á milli stjórnenda, notenda, tækniteyma og birgja.
Kerfisinnleiðingar
Uppfærslur
Þarfagreining
Ferlagreining
Val á tæknilausnum
Samskipti við birgja
Breytingar sem hafa áhrif á fólk, ferla og daglegan rekstur
Af hverju Mintos?
Hjá Mintos vinnum við með fyrirtækjum og stofnunum sem vilja koma mikilvægum verkefnum áfram með skýrleika, festu og raunverulegum árangri sem er í takt við þau markmið sem verkefnið á að skila.
Með verkefnastjóra frá Mintos færðu ekki bara afbragðs verkefnastýringu heldur líka góða yfirsýn yfir verkefnið og getur betur gripið inn í ef á þarf að halda og tekið upplýstari ákvarðanir í framhaldinu.
Verkefnastjórar Mintos hjálpa þér líka að passa upp á upplýsingagjöf til hagsmunaðila eftir þörfum, eftirfylgni með hverskonar áhættum og áhrif verkefna á aðra starfsemi.
Þjónustan hentar þegar
Ráðast skal í innleiðingu eða breytingar sem hafa víðtæk áhrif
Það vantar skýrari yfirsýn yfir verkefnið
Stjórnendur hafi ekki nægan tíma til að halda utan um framvindu
Sýn á markmið verkefnis hefur týnst
Verkefnið er farin að dragast á langin