
FRÁ TILGANGI
TIL ÁRANGURS
Hlutverk stjórnenda í að skapa
menningu sem skilar árangri


Þegar fólk skilur tilganginn verður auðveldara að skapa árangur
✔
✔
✔
Margir vinnustaðir búa yfir hæfileikaríku og metnaðarfullu starfsfólki. Samt upplifa margir stjórnendur að þegar ábyrgð dreifist, verði samstarf flóknara en þörf er á og starfsfólk eigi erfitt með að sjá hvernig dagleg verkefni tengjast stærri markmiðum starfseminnar.
Þegar fólk sér ekki heildarmyndina verður vinnan auðveldlega röð verkefna sem þarf að klára. Þegar fólk skilur tilganginn, sér samhengi hlutanna og upplifir að framlag þess skipti máli, skapast aftur á móti meiri þátttaka, ábyrgð og árangur.
Á námskeiðinu Frá tilgangi til árangurs skoðum við hvernig stjórnendur geta byggt upp menningu sem tengir fólk við tilgang starfseminnar og skapar skýrari tengingu milli daglegrar vinnu og árangurs.
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir:
-
Framkvæmdastjóra
-
Sviðsstjóra
-
Skrifstofustjóra
-
Millistjórnendur
-
Teymisleiðtoga
-
Stjórnendateymi
-
Mannauðsstjóra

Áskoranir sem margir stjórnendur þekkja
-
Starfsfólk sér ekki alltaf hvernig vinna þess tengist markmiðum starfseminnar.
-
Teymi vinna vel innan sinna eininga en skilja síður hvernig þau tengjast heildinni.
-
Ábyrgð verður óskýr og verkefni lenda á fáum einstaklingum.
-
Breytingar mæta mótstöðu eða áhugaleysi.
-
Gildi og stefna eru til staðar en lifa ekki í daglegri hegðun.

Á námskeiðinu skoðum við:
Menningu sem styður árangur
Hvernig vinnustaðamenning mótast í raun og hvernig stjórnendur hafa áhrif á hana á hverjum degi
Tilgang og virðissköpun
Hvernig hjálpa má starfsfólki að skilja af hverju starfsemin er til, fyrir hvern virði er skapað og hvernig eigið framlag tengist heildinni
Heildarsýn og yfirsýn
Hvernig skapa má skýrari tengingu milli stefnu, markmiða, verkefna og daglegrar vinnu
Ábyrgð og þátttöku
Hvernig byggja má upp menningu þar sem fólk tekur frumkvæði, sýnir ábyrgð og upplifir að það skipti máli
Hlutverk stjórnenda
Hvernig stjórnendur skapa samhengi, miðla tilgangi og tengja fólk við stærri myndina
Ávinningur fyrir þátttakendur
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:
✔ Betri skilning á því hvernig menning hefur áhrif á árangur
✔ Verkfæri til að skapa meiri yfirsýn og samhengi
✔ Aðferðir til að efla þátttöku og ábyrgð starfsfólks
✔ Skýrari sýn á hlutverk sitt sem leiðtoga menningar
✔ Nýjar leiðir til að tengja fólk við tilgang starfseminnar
Fyrirkomulag
Námskeiðið er í boði sem:
-
Fyrirlestur (60 - 90 mín.)
-
Vinnustofa (2 - 4 klst.)
-
Sérsniðið námskeið fyrir stjórnendateymi
-
Á staðnum eða í gegnum fjarfundarbúnað
Við hjá Mintos hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp skýra forystu, sterka menningu og markvissa framkvæmd.
Við sameinum reynslu úr verkefnastjórnun, breytingastjórnun og leiðtogastarfi til að hjálpa stjórnendum að þróast í starfi og skapa vinnustaði þar sem fólk skilur hlutverk sitt, vinnur saman að sameiginlegum markmiðum og nær árangri.