top of page
80dabd3f262e5f0895093fce9b54acc93a7d8117abcbc9cddf0e166247509ea7.png

HEILDRÆNN LEIÐTOGI

Frá sjálfsþekkingu til árangursríkar forystu

df912822d7735a064bc45fa7a00abd7f35557d425476f640e8041ae0e49067f1_edited.jpg

Frá sjálfsþekkingu til árangursríkrar forystu

Sterk forysta byrjar ekki með stefnu, ferlum eða skipuritum.

 

Hún byrjar með leiðtoganum sjálfum.

​

Áhrifaríkir leiðtogar skilja hvernig þeirra eigin gildi, hegðun og samskipti hafa áhrif á fólk, teymi og vinnustaðamenningu. Þeir skapa skýrleika, byggja upp traust og leiða breytingar af öryggi og festu.

 

Heildræn forysta er leiðtoganámskeið sem leiðir þátttakendur í gegnum ferðalag frá innri meðvitund yfir í ytri áhrif – frá því að skilja sjálfan sig betur yfir í að byggja upp teymi, menningu og árangur sem endist.

Pensive Man Portrait

Af hverju þetta námskeið

  • Mörg leiðtoganámskeið einblína annað hvort á einstaklinginn eða stjórnunina

  • Raunverulegur árangur verður hins vegar til þegar leiðtogar ná að tengja þessa þætti saman

  • Þegar þú skilur sjálfan þig betur geturðu átt sterkari samskipti

  • Þegar samskiptin verða sterkari skapast meira traust

  • Þegar traustið eykst verða teymi skilvirkari

  • Þegar teymi vinna betur saman styrkist menningin

  • Og þegar menningin styrkist fylgir árangurinn

Leiðtogar móta menningu -> Menning mótar árangur

Þetta námskeið er ferðalag sem hjálpar þér að þróast sem einstaklingur, leiðtogi og menningarskapandi afl innan þinnar skipulagsheildar.

​

Frá sjálfsþekkingu til árangursríkrar menningar!

​Námskeiðið hentar:

  • Stjórnendum á öllum stigum

  • Nýjum stjórnendum sem vilja byggja sterkan grunn

  • Reyndum stjórnendum sem vilja þróa leiðtogahlutverk sitt áfram

  • Leiðtogum sem vilja hafa jákvæð áhrif á menningu og árangur

  • Sérfræðingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í stjórnunarhlutverk

Smiling Woman Portrait

Námskeiðinu er skipt í 5 hluta sem hver byggir á öðrum

1. Leiðtoginn sjálfur

Byggðu upp sterkari grunn sem leiðtogi.

  • Sjálfsþekking og sjálfsvitund

  • Persónuleg gildi og tilgangur

  • Markmiðasetning

  • Samskiptastíll

  • Jafnvægi og sjálfbær árangur

  • Orka, álag og forgangsröðun

 

2. Leiðtoginn í tengslum við aðra

Lærðu að byggja upp traust og áhrif.

  • Árangursrík samskipti

  • Endurgjöf sem skilar árangri

  • Erfið samtöl

  • Átök og lausn þeirra

  • Samvinna og teymisvinna

  • Sálrænt öryggi

 

3. Árangursrík stjórnun

Taktu betri ákvarðanir og leiddu breytingar.

  • Hlutverk stjórnandans

  • Ábyrgð og umboð

  • Forgangsröðun

  • Ákvarðanataka

  • Breytingastjórnun

  • Framsal og eftirfylgni

  • Framkvæmd stefnu í daglegum rekstri

​​​

4. Menning sem styður árangur

Mótaðu vinnustað sem fólk vill tilheyra.

  • Menning og hegðun

  • Gildi í verki

  • Traust og ábyrgð

  • Þátttaka starfsfólks

  • Menning breytinga og umbóta

  • Hlutverk leiðtogans í menningarsköpun

​​

5. Lærdómur og seigla

Byggðu upp getu til að vaxa í gegnum áskoranir.

  • Persónuleg seigla

  • Seigla teyma

  • Að læra af mistökum

  • Stöðugar umbætur

  • Lærdómsmenning

  • Sjálfbær árangur til lengri tíma​

Ávinningur fyrir þátttakendur

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

​

✓ Aukið sjálfstraust í leiðtogahlutverki sínu

✓ Sterkari samskiptafærni

✓ Skýrari sýn á eigið leiðtogahlutverk

✓ Betri verkfæri til að leiða breytingar

✓ Dýpri skilning á vinnustaðamenningu

✓ Aukna getu til að byggja upp sterk og árangursrík teymi

✓ Persónulega þróunaráætlun til framtíðar

Námið fer fram samhliða daglegum störfum

 

Þetta er ekki námskeið þar sem þátttakendur sitja og hlusta í nokkra daga og fara svo aftur í sama farið.

 

Á milli lota vinna þátttakendur markvisst með eigin áskoranir, teymi og verkefni.

 

Þannig verður námið strax hluti af daglegri framkvæmd.

 

Fyrirkomulag

 

Lengd: 16–20 vikur

Lotur: Kennslulota á þriggja vikna fresti

Einstaklingsþjálfun: One-on-one leiðtogasamtöl milli lota

 

Verkefni:

  • Persónuleg leiðtogaverkefni

  • Verkefni tengd eigin teymi eða starfsemi

  • Umræður og reynslumiðlun í næstu lotu

Við hjá Mintos hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp skýra forystu, sterka menningu og markvissa framkvæmd.

​

Við sameinum reynslu úr verkefnastjórnun, breytingastjórnun og leiðtogastarfi til að hjálpa stjórnendum að þróast í starfi og skapa vinnustaði þar sem fólk skilur hlutverk sitt, vinnur saman að sameiginlegum markmiðum og nær árangri.

Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að vita meira um þetta námskeið.

bottom of page