top of page
1cc66505527c9d3ede553580ec49fc65da90b3abb297f08d714ab4cf7df9ebab.png

STJÓRNANDI TIL LEIGU

​Þegar þig vantar stjórnanda tímbundið

Við tökum ábyrgð, sköpum stöðuleika og tryggjum framvindu þar til varanleg lausn hefur verið innleidd.

Þjónusta sem hentar til að brúa bilið

Óvænt starfslok eða leyfi
Stjórnanda vantar óvænt og tryggja þarf samfellu í rekstri.

Ný eining í uppbyggingu

Ný starfsemi eða eining er í þróun og þarf sterka forystu frá byrjun.

Breytingar

Skipulagsbreytingar eða aðrar breytingar krefjast skýrrar stjórnunar og leiðsagnar

Vöxtur

Mikilvægt verkefni eða innleiðing krefst stjórnunar eða stjórneyndateymi vantar styrk til vaxtar.

Reynslumikill stjórnandi sem kemur inn tímabundið

 

Stundum skapast aðstæður þar sem mikilvægt er að fylla stjórnendahlutverk hratt og örugglega.

Í slíkum aðstæðum getur bið eftir ráðningu nýs stjórnanda skapað óvissu, tafir og aukið álag á starfsfólk og aðra stjórnendur.

 

Hjá Mintos bjóðum við upp á tímabundna stjórnun þar sem reynslumikill stjórnandi kemur inn í afmarkaðan tíma og tekur ábyrgð á rekstri, fólki og framvindu, þar til varanleg lausn hefur verið fundin.

Þjónustferlið

e297cf2be7f2669f2b1648eed00c65ae82cd3d1914a97825542984975d7e866f.png

Af hverju Mintos?

 

Við höfum víðtæka reynslu af stjórnun eininga, breytingastjórnun, stefnumótun, skipulagsbreytingum og erum einnig með þjálfun í að takast á við mannlega þætti sem hafa áhrif á vinnustað.

Við höfum ástríðu fyrir að hjálpa til við að gera ferli, einingar og skipulagsheildir skilvirkari, árangursríkari og á sama tíma skapa traust, vellíðan og hlutdeild starfsfólks.

a379a50e16a2cf0c6ab5de16c6b14a58f58988815df7ff238e69c0703eb148af.png

Vantar þig stjórnanda tímabundið?

​​Hafðu samband og við tökum samtal um hvar þið eruð stödd, hvaða áskoranir þið eruð að glíma við og hvort við getum hjálpað til við að skapa meiri skýrleika.

bottom of page